skýrsla um nýtt áhættumat á innflutningi hunda.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður beindi tveimur spurningum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varðandi áhættumat fyrir innflutning hunda og katta. Í fyrsta lagi er spurt hvað líði niðurstöðum skýrslu um nýtt áhættumat á innflutningi hunda sem skila átti í apríl 2018, líkt og hv. þingmaður kom inn á, og dr. Preben Willeberg gerir fyrir ráðuneytið og hvenær séu áætluð skil.
Í árslok 2017 var gerður samningur við dr. Preben Willeberg, fyrrverandi yfirdýralækni Danmerkur, þar sem hann tók að sér að vinna umrætt áhættumat vegna innflutnings á hundum og köttum til Íslands, með sérstakri áherslu á að kanna breytingar vegna hjálparhunda, svo sem blindrahunda. Þegar samningurinn var gerður var áætlað að áhættumati yrði skilað í apríl 2018. Við gerð þess samnings var gengið út frá að meta þyrfti um 20 sjúkdóma og sýkingar í tengslum við áhættumatið. Við nánari athugun og með hliðsjón af áhættumati sem unnið var árið 2002 um innflutning hunda og katta til Íslands var talið nauðsynlegt að fjölga sjúkdómum og sýkingum sem meta þyrfti áhættuna af. Í framangreindu áhættumati frá árinu 2002 eru tilgreindir 54 sjúkdómar og sýkingar. Ljóst er að tímafrestirnir sem gefnir voru við upphaf verkefnisins voru óraunhæfir. Áhættumat eins og hér um ræðir er gífurlega umfangsmikið og mikilvægt að vanda til verka og tryggja eftir fremsta megni að hingað berist ekki sjúkdómar með lifandi dýrum sem borist geta í okkar viðkvæmu búfjárstofna.
Áhættumatið barst ráðuneytinu í lok mars. Um er að ræða tæplega 140 blaðsíðna skjal sem nú er farið yfir í ráðuneytinu og hjá Matvælastofnun og verður birt innan tíðar. Ráðuneytið hefur jafnframt óskað eftir því að Matvælastofnun taki til skoðunar hvort og þá hvernig unnt sé að breyta kröfum varðandi innflutning á hjálparhundum annars vegar og hins vegar hundum og köttum almennt með hliðsjón af niðurstöðum áhættumatsins. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í maí nk.
Í öðru lagi er spurt hvort Hundaræktarfélag Íslands hafi fengið áheyrnarfulltrúa á fundum dr. Preben Willebergs, með sérfræðingum MAST og ráðuneytisins um efnistöku og niðurstöður skýrslunnar í ljósi mikilvægis hlutlægni við gerð hennar. Því er til að svara að Hundaræktarfélag Íslands fékk ekki áheyrnarfulltrúa á fundum dr. Prebens Willebergs. Nú þegar áhættumatið liggur fyrir mun ráðuneytið í samstarfi við Matvælastofnun kanna hvort og þá hvernig unnt er að breyta reglum varðandi innflutning á hundum og köttum. Í þeirri vinnu verður að sjálfsögðu haft samráð við hagsmunaaðila.