149. löggjafarþing — 89. fundur,  8. apr. 2019.

jöfnun orkukostnaðar.

562. mál
[16:25]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og fyrir að vekja athygli á því brýna máli sem jöfnun orkukostnaðar í landinu er. Í umræðum um fimm ára fjármálaáætlun Alþingis í síðasta mánuði kom ég inn á þau mál og ég fagna því að þau séu tekin til umræðu hérna á þinginu. Fyrirspurn hv. þingmanns er í fjórum liðum og ég ætla að leitast við að svara þeim.

Í fyrstu og annarri spurningu hv. þingmanns er spurt: Hvernig miðar vinnu við jöfnun orkukostnaðar samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 og er ráðgert að jafna orkukostnað að fullu? Ef svo er, hvaða leiðir sér ráðherra til þess?

Hér er því til að svara að eins og kemur fram í 15. kafla fimm ára fjármálaáætlunar, sem nýverið var lögð fram á Alþingi eru ýmsar áskoranir og tækifæri til umbóta fyrir hendi varðandi jöfnun orkukostnaðar. Jöfnun orkukostnaðar á landsvísu er í reynd tvískipt mál, því að annars vegar eru það niðurgreiðslur ríkisins vegna húshitunar á köldum svæðum, og um þær fer samkvæmt lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, og er á fjárlögum hverju sinni ákveðið framlag fyrir þær niðurgreiðslur. Á árinu 2019 fara þannig um 1.900 millj. kr., tæpir tveir milljarðar, í beinar niðurgreiðslur til dreifiveitna vegna húshitunar á köldum svæðum samkvæmt fjárlagaliðnum.

Í fimm ára fjármálaáætlun er boðuð 100 millj. kr. hækkun á umfangi niðurgreiðsla á húshitun þar sem framlagið hefur ekki fylgt þeim forsendum sem hafa áhrif á kostnað, svo sem íbúaþróun og veðurfari, og í þessu tilfelli einfaldlega fjölgun ferðamanna á köldum svæðum — þ.e. köldum svæðum þegar kemur að húshitun en ekki í annarri merkingu. Þessi niðurgreiðsla tryggir að mestu leyti jöfnun á húshitunarkostnaði einum og sér á milli þeirra sem hita hús sín með jarðvarma og þeirra sem eiga ekki kost á því. Hins vegar er það síðan jöfnun dreifikostnaðar raforku í dreifbýli og þéttbýli. Um þann þátt fer samkvæmt lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.

Dreifikostnaður raforku er mun hærri í dreifbýli en í þéttbýli af ýmsum ástæðum og til að jafna þann mun er lagt á alla viðskiptavini dreifiveitnanna svokallað jöfnunargjald raforku. Það er í raun skattur sem á að tryggja ákveðna tilfærslu innan dreifiveitukerfisins og er alfarið ráðstafað til niðurgreiðslu dreifikostnaðar í dreifbýli. Dreifiveitur raforku eru sex talsins hér á landi og tvær af þeim eru með sérstaka dreifbýlisgjaldskrá, þ.e. Rarik og Orkubú Vestfjarða.

Í fimm ára fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir þinginu er staðan í dag sú að núgildandi jöfnunargjald raforku tryggir eingöngu 53% af jöfnun dreifikostnaðar á milli þéttbýlis og dreifbýlis. Það er auðvitað allt of lág prósenta. Í fjármálaáætluninni eru sett markmið um að þetta hlutfall jöfnunar dreifikostnaðar verði komið í 65% árið 2020 og 85% árið 2024.

Sem stendur erum við að vinna að útfærslum á leiðum til að ná því markmiði á vegum starfshóps ráðuneytisins og Orkustofnunar. Hér koma í raun tvær leiðir helst til greina, það er annars vegar að tvöfalda núverandi jöfnunargjald, úr 0,3 kr. á kílóvattstund í 0,6 kr., sem hefur þau áhrif að það eru þá 1.960 milljónir í stað 980, það er um tvöföldun, sem verða til ráðstöfunar til að niðurgreiða gjaldskrár í dreifbýli fyrir dreifingu raforku. Hin leiðin er að samþætta og sameina gjaldskrár dreifiveitna í landinu óháð því hvort um er að ræða dreifbýlisgjaldskrár eða þéttbýlisgjaldskrár.

Ég lít svo á og túlka það þannig að það sé skýr vilji hjá Alþingi að hærri kostnaði hjá dreifbýlisveitum verði með einhverjum hætti mætt með tilfærslu innan kerfisins þannig að kostnaðarmunur vegna dreifingar raforku í dreifbýli sé færður niður til jafns við notendur í þéttbýli. Það verkefni sem við stöndum frammi fyrir núna er að finna hagkvæmustu og skilvirkustu útfærsluna að þessu markmiði. Það er ljóst að ein sameinuð gjaldskrá fyrir landið allt felur í sér talsverða kerfisbreytingu og það þarf að skoða ítarlega alla þætti hennar og möguleg áhrif. Það segir sig sjálft að hún mun í grunninn fela í sér hækkun gjaldskrár fyrir dreifingu raforku í þéttbýli en lækkun gjaldskrár í dreifbýli.

Varðandi áhrif í krónum og aurum skulum við hafa hugfast að rafmagnsreikningurinn okkar skiptist nokkurn veginn í þrjá jafna þætti, þ.e. framleiðslu, dreifingu og flutning. Hér erum við eingöngu að fást við breytingar sem varða flutninginn, sem er þá þriðjungur af reikningnum. En sem áður segir er starfshópur í þessari vinnu og niðurstöðu hennar er að vænta á næstu vikum.

Að lokum er spurt hvort sambærileg markmið sé að finna í annarri stefnumótun stjórnvalda. Það er unnt að svara því með jákvæðum hætti. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á jöfnun orkukostnaðar milli dreifbýlis og þéttbýlis og sömuleiðis í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Hér er um mikilvægt byggðamál að ræða. Í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024, sem einnig var samþykkt á Alþingi í júní á síðasta ári, er að finna aðgerðir sem snúa að jöfnun orkukostnaðar. Þær tengjast jöfnun búsetuskilyrða og atvinnutækifæra á landsvísu og það þarf svo sem ekki hafa frekari orð um þær. Að sama skapi ber þess að geta að undanfarin ár hefur staðið yfir vinna við gerð orkustefnu fyrir Ísland og í þeirri stefnumótun verður lögð áhersla á (Forseti hringir.) jöfnun orkukostnaðar milli þéttbýlis og dreifbýlis og aðgerðir í þá veru.