jöfnun orkukostnaðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og þingmönnum fyrir góðar athugasemdir. Ég fagna því sem hæstv. ráðherra kom inn á, að ein af þeim hugmyndum sem unnið er með gangi út á að samþætta og sameina gjaldskrár. Það held ég að hljóti að vera skynsamleg leið því að öflun og dreifing raforku er eitt verkefni fyrir samfélagið í heild. Við verðum að ganga markvisst og heildstætt til verka varðandi jöfnun orkukostnaðar í landinu og við þurfum að horfa öðruvísi á málin en gert hefur verið hingað til. Við verðum að horfa á heimili og atvinnulíf um leið og spyrja í þeirri vinnu sem er fram undan: Af hverju þurfum við sérstaka dreifbýlisgjaldskrá? Getum við ekki samþætt þetta og verið með eina gjaldskrá? Hvernig var grunnurinn upphaflega reiknaður? Dreifiveiturnar í dreifbýlinu byggðust upp miklu seinna. Hver var í rauninni kostnaður dreifbýlisins af því? Það þarf að fara vel ofan í grunninn.
Ég hef mikið velt fyrir mér hvernig línan er dregin á milli dreifbýlis og þéttbýlis. Það er ekkert mjög gagnsætt. Er jafnræði tryggt í því fyrir atvinnulífið? Og hvernig getum við byggt upp nýja afhendingarstaði og klasa í kerfinu eins og það er núna þegar nýtt iðnaðarsvæði þarf að hafa náð tiltekinni stærð til að fá orku samkvæmt þéttbýlisgjaldskrá?
Svo er náttúrlega spurning hvort við getum byggt upp kerfi sem notendur skilja og jafnvel við stjórnmálamenn líka. Ég held að það sé verðugt verkefni.
En að lokum (Forseti hringir.) vil ég leggja áherslu á að í framhaldi af skýrslunni sem ráðherra fékk fyrir helgi verði farið í þessa vinnu heildstætt. Svo bíð ég eftir varmadælusvarinu.