jöfnun orkukostnaðar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að svara síðustu spurningunni. Ég er ekki vön að geta ekki klárað svörin í ræðustól af því að ég tala hratt, en ég lenti í því áðan. Það var spurt í fjórða lagi hvort stuðningur við uppsetningu varmadælna á köldum svæðum væri bundinn við heimili. Því er til að svara að stuðningur ríkisins stendur aðeins til boða íbúum sem njóta niðurgreiðslu á raforku til húshitunar og hann er bundinn við íbúðarhúsnæði. Þetta er samkvæmt lögum nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Hv. þm. Birgir Þórarinsson spurði um skattamálin og varmadælurnar, hvort það væru skattskyldar tekjur. Þetta er atriði sem við erum með í sérstakri skoðun með fjármálaráðuneytinu. Það virðist vera einhver misbrestur í túlkun á þessu. Viljinn var sá að þetta ætti ekki að vera skattskylt. Það var hv. þingmaður sem vakti athygli á þessu og málið er komið í ferli á milli þessara ráðuneyta.
Varðandi virðisaukaskattsundanþáguna vegna varmadælna þá er, að mér skilst, nefndin annaðhvort með það til skoðunar eða það hefur verið lagt fram. Við vöktum alla vega athygli á því að sú undanþáguheimild var að renna út, hefur verið í gildi undanfarin fimm ár. Nú er verið að leggja til að hún verði framlengd til að gera þetta að vænlegri kosti sömuleiðis.