149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:57]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni með þær fullyrðingar sem hún talaði um, menn hafa komið með þær aftur og aftur og augljóslega með það að markmiði að afvegaleiða umræðuna og hræða fólk

Svörin eru mjög einföld. Er eitthvað í þessu sem ýtir undir að hér verði einhver sem tengist orku, orkufyrirtæki, einkavædd? Nei, það er ekki svo og ég veit ekki til þess að neinn fræðimaður hafi haldið því fram.

Er eitthvað í þessu sem ýtir undir eða leggur á okkur skyldur varðandi eign okkar á auðlindunum? Svarið er nei, það er ekki svo. Og aftur: Ég veit ekki til þess að neinn fræðimaður sem vill láta taka sig alvarlega hafi haldið því fram.

Þriðja spurningin: Er eitthvað í þessu sem leggur á okkur skyldu til að leggja sæstreng? Svarið er mjög einfalt: Nei. Og ég veit ekki til þess að neinn fræðimaður sem vill láta taka sig alvarlega hafi haldið því fram.