ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Það er erfitt að klára þennan þátt málsins í stuttu svari en einfalda svarið er þetta: Ef við förum hina leiðina er það mikil pólitísk óvissuferð. Sú leið hefur aldrei verið farin og það er ómögulegt að segja og enginn getur fullyrt hvar það endar.
Aðalatriðið er að kallaðir voru til nokkrir mjög hæfir fræðimenn. Farið var eftir ráðleggingum þeirra fræðimanna sem höfðu mestar efasemdir, við getum sagt þær íhaldssömustu þegar kemur að þessu máli og túlkun á stjórnarskránni. Það er sátt þótt þeir hafi ekki náð saman um málin og enginn deilir lengur um það að sú leið sem hér er lagt upp með standist stjórnarskrá. Það er aðalatriði málsins.
Ég vonast til þess og treysti því að ég fái tækifæri til að ræða þetta betur en núna á einni mínútu. En ég er hrikalega ánægður með að hafa loksins verið hrósað fyrir að svara skýrt í fyrra andsvari. [Hlátur í þingsal.]