ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er rétt, og full ástæða til þess, að gæta hagsmuna okkar í hvívetna. Það hefur hins vegar verið sérkennilegt þegar reynt hefur verið að útfæra gildissvið þriðja orkupakkans á einhvers konar kvöð um flutningsvirki sem ekki er til staðar, þ.e. sæstreng, eða kvaðir um að leggja slíkan sæstreng eins og margir hafa haldið fram. Á sama tíma hefur enginn vefengt að gas sé undanþegið þriðja orkupakkanum hvað okkur varðar af því að við erum ekki með gasframleiðslu. Ég geri ráð fyrir að enginn hafi reynt að halda því fram að okkur beri skylda til að bora eftir gasi vegna þriðja orkupakkans. Það getur verið gott að vera með belti og axlabönd. Ég myndi ganga svo langt að segja að við séum bæði með belti og axlabönd og í smekkbuxum.