149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:06]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er skylda okkar alþingismanna að virða stjórnarskrána samkvæmt þeim eiðstaf sem við vinnum að henni. Verði fyrirvaranum aflétt, eins og hér er gerð tillaga um, öðlast ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar gildi og verður skuldbindandi fyrir Ísland að þjóðarétti í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Þá verður ekki aftur snúið. Í engu hefur verið sýnt fram á að hinn lagalegi fyrirvari, sem sagður er möguleg lausn, nægi til að leysa okkur undan þeirri þjóðréttarlegu skuldbindingu.

Herra forseti. Ég leyfi mér að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar í gögnum málsins er sýnt fram á að hinn lagalegi fyrirvari nægi að þjóðarétti til að leysa okkur undan þeirri þjóðréttarlegu skuldbindingu sem við tökum á okkur með því (Forseti hringir.) að fella brott fyrirvarann?