149. löggjafarþing — 90. fundur, 8. apr. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Virðulegur forseti. Það er fullkomlega eðlilegt að hv. þingmaður spyrji ráðherrann hvort þessi lausn dugi. En svarið er að finna hjá þeim fræðimönnum sem hann vitnar mest til. Já, þessi lausn dugar — þeir segja það í niðurstöðunni.
En hv. þingmaður lét hins vegar hjá líða að svara spurningu minni sem laut að því hvar í þessari tillögu hæstv. utanríkisráðherra væri að finna afsal á yfirráðum þjóðarinnar yfir orkuauðlindum sínum, eins og skilja mátti hv. þingmann í upphafi ræðu sinnar hér áðan.