149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:48]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður verður snúa sér annað en til mín. (ÓGunn: Ég spyr um þína skoðun.) Ég hef ekki hugmynd og ég bendi bara hv. þingmanni á að snúa sér eitthvert annað en til mín.

Ég hef þá ósk og von að þetta mál verði rætt hérna á málefnalegum grundvelli og án upphrópana, eins og hv. þingmaður hafði hér í frammi rétt í þessu. Það er af svo mörgu að taka.

Má ég til að mynda nefna eitt atriði. Höfundarnir segja að það sé engin heimild til að taka í lög ákvæði sem ekki fá staðist íslenska stjórnarskrá, „þó að svo standi á að ekki reyni á umrædd lagaákvæði í svipinn.“(Forseti hringir.)

Af því að hér er ekki sæstrengur í svipinn.

Hér er mjög stórt mál. Ég hef ekki tíma til að fara nánar ofan í þetta en ég bendi á þetta atriði og ég mun fjalla um þetta síðar í þessum umræðum.