ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér þóttu mjög athyglisverð tvö orð sem hann notaði í ræðu sinni, orðin hræðsluáróður og einangrunarstefna. Nú háttar svo til að stjórnmálaflokkur hv. þingmanns er með rörsýn, sem er öndvert við heimssýn. Rörsýnin er þannig að við endann á rörinu er evrumerkið og Evrópusambandið, en menn sjá ekki restina af heiminum. Við hin erum flest þannig, alla vega Miðflokksfólkið, að við viljum eiga góð viðskipti við allan heiminn, ekki bara Evrópu, sem er á fallandi fæti. Við viljum hugsa til Asíu. Við viljum eiga viðskipti við Ameríku, þannig að ég skil ekki alveg hvert hv. þingmaður er að fara með orðinu einangrunarstefna.
Hvað varðar hræðsluáróður langar mig til að geta þess að það sem Miðflokksfólk hefur haldið fram í umræðunni — búið er að kalla það alls konar nöfnum; þegar menn koma allsberir til umræðunnar með ekkert í farteskinu, þá þyrla þeir upp orðum eins og hræðsluáróður og lýðskrum og eitthvað svoleiðis. En þetta fólk sem kemur hingað sjálft allsbert til umræðunnar, er með svo flott rök. Er það ekki? Nei, ekkert endilega.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Telur hann að einhliða yfirlýsing Íslands um fyrirvara við þennan þriðja orkupakka muni halda? Nú áttum við umræður í síðustu viku, að nokkru leyti góðar, um innflutning á ófrosnu, hráu kjöti. Þar höfðum við Íslendingar sett einhliða fyrirvara einhvern tímann í fyrndinni, sem var ekki túkalls virði.
Ég spyr hv. þingmann: Er hann sannfærður um að þeir fyrirvarar (Forseti hringir.) sem nú eru settir muni halda?