ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég held að það sé nauðsynlegt að menn hafi í huga þegar þessi þingsályktunartillaga er rædd að í 125. gr. EES-samningsins kemur skýrt fram að samningurinn hafi engin áhrif á reglur samningsaðila um skipan eignarréttar. Það er skýrt. Þannig að menn hafi það í huga.
Ég vil líka vitna til þess sem kom fram á vef utanríkisráðuneytisins 22. mars þegar fyrir lá hvernig þessi þingsályktun væri úr garði gerð og lagalegir fyrirvarar gerðir, en þar segir Stefán Már Stefánsson, sem hér er stöðugt vitnað í, með leyfi forseta:
„Grunnforsenda þessarar lausnar er sú að þriðji orkupakkinn leggi ekki skyldur á Ísland til að koma á fót grunnvirkjum yfir landamæri heldur sé ákvörðun um það alfarið á forræði Íslands. Þetta er önnur þeirra leiða sem lögð var til í áliti okkar Friðriks og að okkar mati er upptaka og innleiðing gerðarinnar með þessum hætti heimil samkvæmt stjórnarskrá, (Forseti hringir.) enda er lagalegur fyrirvari um að þessi tilteknu ákvæði komi ekki til framkvæmda fyrr en lagagrundvöllurinn, þar með talið stjórnskipunarvandinn, hefur verið tekinn til endurskoðunar á Alþingi.“
Nú spyr ég hv. þingmann: Er hv. þingmaður sammála þessu áliti Stefáns Más Stefánssonar eða ekki?
(Forseti (JÞÓ): Forseti minnir þingmenn á að halda ræðutíma og nú þegar er bara ein mínúta í hverju andsvari hverfur hann mjög fljótt.)