149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:46]
Horfa

Una María Óskarsdóttir (M) (andsvar):

Ég vil þakka Óla Birni Kárasyni áhuga á málinu. Ég reyndar heyrði ekki seinni spurninguna. Varðandi hið fyrra sem hann var að ræða um talaði hann um skipan á eignarrétti. Ég get alveg verið sammála því. Það er auðvitað alveg rétt sem hv. þingmaðurinn er að segja hér. En málið snýst um yfirráðin. Samkvæmt því sem lögmennirnir tveir segja, Stefán Már og Friðrik: Ef þessar gerðir tvær verða samþykktar eru yfirráðin í höndum Orkustofnunar Evrópu. Þetta er á bls.4.