ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Stór hluti og grunnhluti af eignarréttinum er auðvitað nýtingarrétturinn. Nýtingarrétturinn er alveg skýr. Það er ekkert verið að hagga við honum.
Það sem ég var að vitna til eru orð Stefáns Más Stefánssonar þar sem hann lýsir því yfir að sú lausn sem liggur hér á borðum sé fullnægjandi að hans mati.
Og nú spyr ég hv. þingmann aftur: Er hún sammála Stefáni Má Stefánssyni sem telur þetta fullnægjandi lausn? Því álitsgerð hans var gerð áður en þessi tillaga var samin og lögð fram — með stuðningi hans, samkvæmt forskrift sem hann leggur til í álitsgerðinni. Nú segir hann í yfirlýsingu sem birtist á vef utanríkisráðuneytisins: Þetta er fullnægjandi að mínu mati. Þetta er fullnægjandi lausn. Hún er góð.
Styður hv. þingmaður Stefán Má og þessa ályktun hans eða ekki? Eða (Forseti hringir.) er þetta bara svona val? Ef mér líkar við skoðun er hún í lagi, ef mér líkar ekki við hana (Forseti hringir.) er hún ekki í lagi?