149. löggjafarþing — 90. fundur, 8. apr. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Herra forseti. Hv. þingmaður fjallar um ACER, Orkustofnun Evrópu, og að hún hafi í raun og veru valdheimildir og þær gangi þá yfir til ESA umfram eftirlitið með orkuflutningi á milli landa. Og hvar getur hún í raun og veru séð að þær heimildir varði líka orkuframleiðslu og byggingu nýrra orkuvirkja o.s.frv.? Ég sé það ekki og ég skora á hv. þingmann að sýna fram á að þegar ACER leggur einhver drög fyrir ESA varði það annað en það sem ACER á að gera, sem er eftirlit með orkuflutningi milli landa.