149. löggjafarþing — 90. fundur,  8. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:57]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður staðfestir nákvæmlega það sem ég held að hv. þingmaður misskilji, að þetta varði eitthvað annað, valdheimildir og annað slíkt, sem fram kemur í þessari álitsgerð, varði eitthvað annað en eftirlit með flutningum á milli landa. Um það snýst akkúrat þetta sem þeir eru að tala um. Vissulega eru ákveðnar valdheimildir og vissulega hafa þessir sömu höfundar talið sem svo að við værum að fórna þarna ákveðnum valdheimildum ríkisins. En þetta snýst ekki um að hingað geti komið sæstrengur eða við þurfum að framleiða í hann, alls ekki. Í því liggur sá skelfilegi grundvallarmisskilningur, sem mér finnst skelfilegur vegna þess að hann litar allt sem hér fer fram. Það er svo sérkennilegt þegar eru sex lögfræðiálit að hv. Miðflokksmenn skuli bara velja það sem hentar þeim og meira að segja horfa fram hjá því að Stefán Már Stefánsson og samstarfsmaður hans telja að leið Íslands sé í lagi.