ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég verð bara að tala alveg frá hjartanu. Hv. þm. Birgi Ármannssyni, sem ég held að teljist ákaflega vel máli farinn, tekst samt ekki að eyða óvissunni úr mínu brjósti. Ef þetta mál væri einfalt ætti honum að hafa tekist það fyrir löngu síðan.
Ég nefni hér, bara til að það komi fram, að meðal þeirra aðila sem efast um þetta eru menn eins og Frosti Sigurjónsson, Guðni Ágústsson, Haraldur Ólafsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Hjörleifur Guttormsson. (ÓGunn: Eru þetta lögmenn?) Nei, ég er að vitna til ... Fyrirgefið að það skuli vera að koma hér úr bakherbergjum kall. Viltu gefa upp nafn, sá sem kallar fram í? Svo að hægt sé að skrá frammíkallið?
Mér þykir bara eðlilegt þegar menn sem hafa mikla reynslu af störfum fyrir Alþingi Íslendinga og við lagasetningar og við þingsályktunartillögur, þegar þeir hafa uppi svona miklar efasemdir, finnst mér eðlilegt að við (Forseti hringir.) hlustum.