ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég ætla að byrja aftast í erindi hv. þingmanns því að þar var eiginlega eina spurningin, ef ég hef fylgst nógu vel með. Hitt voru komment á það sem ég sagði. Sumt tók hv. þingmaður undir og annað dró hann í efa, eins og gengur. Svo spyr hann, og það er útgangspunkturinn, hvort ég muni þá verða sammála verði sá texti sem birtur er á stjornarradid.is, álit þessa sama manns fyrir nefnd. Þannig skil ég spurninguna.
Ef og hefði fram í tímann-spurningar finnast mér reyndar frekar erfiðar. Mér finnst samt miklu meira vægi í því ef þetta kemur sem sérfræðiálit fyrir nefnd eða sem fylgiskjal. Þá hefur það að sjálfsögðu meira vægi, hv. þingmaður, en sem texti á vefsvæði, jafnvel þótt vefsvæðið sé stjornarradid.is. Það finnst mér liggja í hlutarins eðli.
Það gleður mig að hv. þingmaður skuli líka staðfesta það sem ég taldi mig þó vita þrátt fyrir að hafa umtalsvert minni reynslu en hann í svona málum, að auðvitað er þetta ekkert fylgiskjal, eins og haldið var fram í dag. Hv. þm. Ólafi Ísleifssyni var hreinlega sýndur dónaskapur eftir að hann hafði lokið ræðu sinni fyrir að halda því fram. Því var haldið fram fullum fetum. Svo kemur bara í ljós samdægurs að það stenst ekki. Það er að mínu mati óboðlegt í svona stóru máli.