ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Svarið er nei. Ég held að við hefðum ekki verið neydd til þess að leggja skipaskurði, enda er hér um myndlíkingu að ræða sem ég er ekki einn um að nota í þessum þingsal.
Ég er hins vegar sannfærður um að ef Íslendingar hefðu á einhverjum tímapunkti ákveðið að gefa einhverri samevrópskri stofnun með yfirþjóðlegt vald tækifæri til að stjórna öðrum auðlindum, t.d. fiskveiðiauðlindinni, værum við ekki stödd þar sem við erum stödd í dag sem þjóð. Ég held að það sé algjört lykilatriði að við horfum til þess að við fáum sjálf til allrar framtíðar að halda á öllum lyklum í málinu. Ef bestu rökin fyrir þessu máli eru skaðleysi þá átta ég mig ekki á þunganum sem lagður er í málið.