ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég hafði og hef auðvitað haft töluverðar áhyggjur af innleiðingu þriðja orkupakkans. Það gerði ég á sl. ári og fór þess vegna í töluvert mikla vinnu að reyna að kynna mér og skilja hvað fælist í honum. Eitt af því sem ég gerði var að leggja fram mjög ítarlegar spurningar, fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra í 14 liðum. Ég vona að hv. þingmaður hafi haft tök á því að kynna sér það vegna þess að það gæti nú kannski hjálpað eitthvað. Síðan var fyrirspurn til hæstv. iðnaðarráðherra um sama efni sem ég vona að allir þingmenn hafi haft tök á að kynna sér.
Þetta er mín leið til að fara í gegnum málið og kynna mér það, reyna að skilja hvað felst í því. Ef hv. þingmenn koma fram og segja að hér sé verið að blekkja þingheim, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson sagði í ræðu sinni, þá skipta ekki máli skrifleg svör við mjög ítarlegum fyrirspurnum. Þá skipta í sjálfu sér ítarleg lögfræðileg álit frá mörgum lögfræðispekingum litlu máli.
Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður finni þess stað einhvers staðar í þriðju orkutilskipuninni að verið sé að leggja skyldur á íslensk stjórnvöld að leggja sæstreng. Mér virðist að hv. þingmaður og fleiri þingmenn hafi töluverðar áhyggjur af því og ég skil það. Hvar eru þær skyldur lagðar á og með hvaða hætti? Það væri gott að hv. þingmaður myndi upplýsa mig um það.