störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hvaðan kemur varan? Hver eru kjör og aðbúnaður þeirra sem framleiða vöruna, hvert er kolefnisfótsporið, notkun lyfja, eiturefna o.s.frv.? Allt eru þetta hugtök sem vert er að skoða. Ég man vel eftir þeim verksmiðjum sem stóðu á sínum tíma á Gleráreyri norður á Akureyri, að mörgu leyti blómlegur iðnaður sem stóðst síðan ekki tímans tönn í samkeppni við vörur að utan. Í dag stendur á sama stað blómleg verslunarmiðstöð — innlendur iðnaður burt og ýmiss erlendur varningur í staðinn. Hvert stefnum við? Er þetta bara allt í lagi? Væntanlega er þetta gott fyrir neytendur. En er það gott fyrir þjóðarbúskapinn? Ég er nokkuð viss um að svo sé ekki. Allt kostar þetta gjaldeyri og eftir því sem við framleiðum minna þeim mun meira kostar það okkur, þjóðarbúið og neytendur þegar öllu er á botninn hvolft.
Það er vel þekkt að þjóðir heimsins reyni að verja innlenda framleiðslu sína með ýmsum verkfærum, verndartollum og stuðningi með beinum eða óbeinum hætti. Aukin samkeppnishæfni gagnast því ekki einungis atvinnulífinu heldur samfélaginu í heild sinni. Iðnaður er enn mjög umfangsmikill í íslensku efnahagslífi og stendur undir um 30% af landsframleiðslu. Greinin er fjölþætt og snertir nær alla þætti hagkerfisins. Greinin hefur átt stóran þátt í núverandi efnahagsuppsveiflu og mikil tækifæri eru til vaxtar, ekki síst með frekari virkjun hugvits og nýsköpunar.
Virðulegur forseti. Öll verslun er af hinu góða en við byggjum ekki upp samfélag til framtíðar án blómlegs iðnaðar til sjávar og sveita.