störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ísland er lítið eyland í miðju Atlantshafi. Í því felast bæði ógnanir og tækifæri. Lífsgæði okkar byggja að stórum hluta á utanríkisviðskiptum. Þannig hafa alþjóðaviðskipti aukið framleiðslumöguleika á Íslandi og sú aukna framleiðsla og verðmætasköpun eykur kaupmátt þeirra sem landið byggja.
Á síðustu 25 árum hefur verg landsframleiðsla á mann u.þ.b. tvöfaldast. Á síðustu 25 árum hefur kaupmáttur heimilanna nærri því tvöfaldast. Á síðustu 25 árum hefur verðmæti útflutnings á mann þrefaldast á föstu verðlagi. Það er óhætt að fullyrða að hagvöxtur og velsæld hafa aukist til muna á síðustu 25 árum. En af hverju nota ég viðmiðið 25 ár? Jú, það er vegna þess að Ísland varð aðili að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir 25 árum síðan og þó að ég trúi því að við hefðum vel lifað af án þess að vera aðili að EES trúi ég því líka að velsæld okkar litla eyríkis sé fyrst og fremst því að þakka að við stundum frjáls og óháð viðskipti við önnur lönd.
Aðild okkar að EES gerir fyrirtækjum okkar kleift að hafa 580 milljóna markað sem heimamarkað. Ég hef heyrt fulltrúa atvinnulífsins tala um EES sem líflínu sína.
EES gengur út á meira en viðskipti vara og þjónustu milli landa, einnig frjálst flæði fjármagns og fólks. Það er líka hluti af samningnum. Fólksflutningar til og frá landinu jafna sveiflur sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf og fylgni hagvaxtar og fólksflutninga er augljós.
Á 25 ára afmæli EES-samningsins er full ástæða til að ræða um samninginn og mikilvægi hans fyrir Ísland. Samningurinn hefur mikla kosti, án efa líka einhverja galla en það er okkar að vinna með þá og fullnýta kostina sem samningurinn gefur okkur.
Hluti af fjórfrelsinu og aðgangur okkar að EES-markaðnum skapast vegna samræmdra reglna með vöru og þjónustu á markaðnum. Stundum er það þannig að reglur sem skipta miklu máli á meginlandinu hafa minna eða ekkert vægi hér. Það á við um þriðja orkupakkann. Bara hluti af því sem hann hefur fram að færa snertir eyjuna okkar. Þá aðlögum við innleiðingu pakkans þannig að hagsmunir okkar og auðlindir séu tryggar (Forseti hringir.) og höldum áfram óhikað inn í framtíðina því að þar eru tækifærin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)