ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Þriðji orkupakkinn felur það í sér að löggjafar- og framkvæmdar- og dómsvald í orkumálum flyst úr landi þegar sæstrengur verður að veruleika og hann mun verða að veruleika. Ef allt þetta mál stendur og fellur með sæstreng þá liggur það fyrir að sæstrengur verður lagður. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði á aðalfundi Landsvirkjunar 2014 að raforkustrengur yrði lagður til Íslands í framtíðinni. Á því léki enginn vafi. Hann sagði mikinn áhuga á þessu í Bretlandi og hvatti til þess að farið yrði í forkönnun á lagningu sæstrengs. Sá tímapunktur mun koma að lagður verður sæstrengur til Íslands, það er ekki nokkur vafi. Tæknin er að koma og það er gríðarleg hagkvæmni í þessu og þróunin er hröð, sagði forstjóri Landsvirkjun.
Upplegg ríkisstjórnarinnar í þessu máli er að banna sæstreng til Evrópu til þess að geta samþykkt þriðja orkupakkann.
Þá langar mig að spyrja hæstv. hv. þingmann:
Hvers vegna á að undirgangast stjórnunarvald Evrópusambandsins á raforkumarkaði í okkar litla landi þegar bannað verður að tengjast honum?