149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:32]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við erum ekki að samþykkja þennan orkupakkar möglunarlaust. Við erum að mögla. Þetta er ekki gert möglunarlaust. Hér er hafður fyrirvari á öllu. Eins og hæstv. utanríkisráðherra sagði var hann með belti og axlabönd og gott ef hann var ekki í smekkbuxum líka.

Hv. þingmaður spurði: Hvers vegna er ekki hægt að segja nei? Ég hef að vísu alltaf verið þannig maður að ég segi nei ef ég get sagt nei. En hvers vegna eigum við að segja nei? Við erum aðilar að þessum samningi. Þetta varðar fleiri en okkur. Ef allir ætla að fara að nota þetta þegar það er einhver gerð og innleiðing sem er hagsmunamál þeirra — og svo segja Norðmenn bara nei, af því að það skiptir þá engu máli. Við eigum ekki að segja nei bara til að segja nei. Við eigum að segja nei ef það skaðar hagsmuni okkar. Þetta gerir það ekki. Það er kjarni málsins. Hér segja menn nei af því bara. (Gripið fram í: Nei.) Nei. (Gripið fram í: Hlusta. ) Nei, af því bara, af því að einhvern tímann síðar eru menn búnir að ákveða að við ætlum að gera eitthvað, (Gripið fram í: Nú?) eins og hv. þingmaður sagði. Það mun koma sæstrengur. (Gripið fram í: Að sjálfsögðu.) Ég hef ekki þessa skyggnigáfu sem þeir ágætu menn hafa. Hér er aðeins verið að gera það sem hægt er að gera, verandi hluti af slíku samstarfi, til að tryggja hagsmuni okkar. Það er gert með bravúr, ef ég má sletta, frá hæstv. utanríkisráðherra, sem ég er farinn að hrósa of mikið. (Forseti hringir.) Ég er ánægður með þetta.