149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:34]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna sem var óvenjulega laus við sannfæringarkraft, svona þegar hann er annars vegar. En af því að hv. þingmaður sagði að enginn væri að tala um að verið sé að framselja vald þá dettur mér í hug hvort hann hafi ekki lesið niðurstöðu greinargerðar Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst, þar sem segir á bls. 42, með leyfi hæstv. forseta:

„Verði 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009 tekin upp í EES-samningsins og innleidd í íslenskan rétt í óbreyttri mynd mun reglugerðarákvæðið fela í sér framsal framkvæmdarvalds til ESA sem ella væri á hendi íslenskra stjórnvalda.“

Og síðar í sömu málsgrein, með leyfi forseta:

„Ekki eru fordæmi fyrir slíku valdframsali til alþjóðlegra stofnana á grundvelli EES-samningsins.“

Nú verður mér á að spyrja hvort hv. þingmaður hafi ekki lesið greinargerðina eða hvort hann sé ósammála þessum tveimur virtu fræðimönnum, hvort hann sé betri lögfræðingur en þeir eða hvernig það sé. Ég hefði áhuga á að heyra frá hv. þingmanni hvað þetta varðar.

Hann segir að hér hafi allir talað um sæstreng. Því fer víðs fjarri. Það er verið að tala um yfirráðin yfir orkumarkaði á Íslandi, burt séð frá því hvort sæstrengur komi, sem hann gerir náttúrlega. (Gripið fram í.) Það er bara aukaatriði í málinu. Og nú kallar læknir fram í og hefur betri skoðun á þessu en lögfræðingarnir og allt í lagi með það, það hefur hver rétt á því.

En ég vil spyrja hv. þingmann: Hefur hann ekki lesið greinargerð þeirra virtu fræðimanna sem hér eiga í hlut eða tekur hann einfaldlega ekkert mark á þeim?