149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:36]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er sitt hvað að læra lögfræði og svo að vera lögfróður. Ég tek auðvitað mark á mínum gamla lærimeistara, Stefáni Má Stefánssyni. (Gripið fram í: En?) Það er ekkert en með það. Ég er einfaldlega að segja að með þeirri aðgerð sem er verið að gera heldur ekki einu sinni Stefán Már Stefánsson því fram að í því felist eitthvert framsal valds. Þessi umræða er möguleg ef og þegar við ákveðum að tengjast innri markaðnum. Það er ekki verið að færa neitt yfirráð yfir orkunni hér til einhverra alþjóðlegra stofnana. Það leikur enginn vafi á því að við ráðum orkuverði hér. Við ráðum hvar við virkjum. Við ráðum því hvar sæstrengur kemur o.s.frv. Það er enginn ágreiningur um þetta, hvorki milli mín og Stefáns Más Stefánssonar né milli annarra fræðimanna í lögfræði yfir höfuð. Það er enginn ágreiningur.

Við höfum hins vegar alltaf deilt um það hvar mörkin liggja þegar við færum vald vegna viðskipta sem við eigum í í Evrópu í hinu og þessu á fjármálamarkaði, þar sem einhverjar stofnanir hafa úrskurðarvald um hvenær við erum farin gegn stjórnarskránni í því. Menn deila um það. Stefán Már Stefánsson hefur raunar haldið því fram að einstök atriði séu ekki brot á stjórnarskránni en þegar þau eru orðin svona mörg sé það hugsanlega orðið brot. Ég ætla ekki að deila um það. Ég ætla ekki að fara í lögfræðilega deilu í ræðustól þingsins. Ég er aðeins að segja að með (Forseti hringir.) þessari framkvæmd, á þennan hátt, er þessi umræða ekki tímabær.