149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:39]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta svar. Enn vantaði sannfæringarkraftinn.

Ég spyr aftur vegna þess að hann hélt því fram að ekki verið að tala um það sem kemur fram í greinargerðinni og ég las áðan. Mér fannst hann ekki svara spurningunni sem varðar þetta brot úr textanum á bls. 43, með leyfi forseta:

„Ekki eru fordæmi fyrir slíku valdframsali til alþjóðlegra stofnana á grundvelli EES-samningsins.“

Spurningin er: Meinti Stefán Már Stefánsson þetta ekki eða skrifaði hann þetta ekki? Hverju heldur hv. þingmaður fram?

Síðan finnst mér hann skauta yfir annað. Hann segir: Við ætlum náttúrlega að ráða verði á orkunni o.s.frv. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hefur ekki lesið það sem fram hefur komið í þessu máli um apparat sem heitir ACER og er yfirþjóðlegt vald sem mun setja upp landsreglara sem er beint undir stjórn ESB og við höfum engin áhrif á. Ætlar hv. þingmaður kannski að fara í lögfræðilegt debatt við hann eða þá aðila sem þar verða, í staðinn fyrir að taka lögfræðilega debattið á löggjafarsamkundunni? Og hvar er rétti vettvangurinn, nema þá kannski í dómsölum? Það verður örugglega tækifæri til þess eftir að þetta verður samþykkt, til að taka slíkt debatt annars staðar en hér.

Annað mál. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður sagði í andsvari rétt áðan að við værum aðilar að þessu samkomulagi og hann væri samþykkur því meðan ekkert betra væri í boði.

Nú ætla ég að spyrja hv. þingmann: Hvernig ætlar hann að komast undan þeim samningi ef eitthvað betra verður í boði eftir að hann er kominn á? Vísir menn hafa sagt að undan því verði ekki vikist öðruvísi en að segja EES-samningnum upp í heild sinni, þ.e. ef menn glæpast til þess eða glópskast til þess að samþykkja (Forseti hringir.) þetta eins og það liggur fyrir.

Ég spyr: Hvað verður gert ef betra verður í boði? Hvaða útleið eigum við?