ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Við höfum alltaf sömu útleiðina, við getum sagt upp samningnum. Við getum hætt. (Gripið fram í.) Ef ég tel hagsmunum okkar betur borgið utan EES, þá hætti ég þar. Það er ekki flóknara en það. En ég tel hagsmunum okkar ekki betur borgið utan þess. Þess vegna mun ég ekki leggja til að fara úr EES nema ég hafi eitthvað betra, sem ég sé ekki í hendi mér í augnablikinu.
En talandi um þetta yfirþjóðlega vald og ACER: Hvar eru þeir að koma inn núna, hv. þingmaður? Hvaða framsal á valdi til þeirra? Ef við ætlum að tengjast einhverjum markaði sem varðar margar þjóðir, er þá ekki eðlilegt að einhver við slíkar aðstæður, eins og EFTA-dómstóllinn, Mannréttindadómstóllinn o.s.frv., hafi úrskurðarvald um þau viðskipti? Hvaða framsal á valdi er það? Ég skil það ekki. (Gripið fram í.) En það er önnur umræða.
Við erum í þessu samstarfi. Að vísu hefur það engin áhrif á okkur hvað varðar orkuna fyrr en við tengjumst markaðnum. Það er kjarni máls sem við ræðum, sem mér finnst erfitt fyrir marga þingmenn að skilja. Við erum ekki að skaða neina hagsmuni, a.m.k. ekki núna. (Gripið fram í.) — Nei. Það eina sem ég finn að þessum samningi eða orkupakka er að einhver orkustofnun eigi að vera sjálfstæð. Allt slíkt fer í taugarnar á mér. En það er auðvitað frá Evrópu komið. (Gripið fram í.) — Já, en það er ekki ástæða þess að ég ætla að hætta í EES-samningnum. Hann er ekki fullkominn og verður aldrei. Stóru hagsmunir okkar eru þeir að vera í því samstarfi. (Forseti hringir.) Ég mun segja nei við öllu ef ég tel það skaða (Forseti hringir.) mikilvægustu hagsmuni okkar. Þetta er ekki að því.