149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:58]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er áhugavert að vera brigslað um það hér hvað eftir annað að þar sem maður er á móti því sem hér er verið að ræða hafi maður ekki lesið sér til, ekki kynnt sér gögn, ekki lesið til enda. Það sem ég vitnaði í í ræðu minni er einmitt niðurlag skýrslu vegna þess að ég las hana alla, staf fyrir staf.

Og þegar talað er um að það sé búið að gera svo mikið hér, búið að leggja svo mikla vinnu í þetta — og af því að við séum í fyrri umræðu eigum við, hvað? Að þegja? Koma ekki hingað upp í ræðu? Þetta er hin þinglega meðferð. Hér ræðum við málið bara á málefnalegum forsendum og tökum umræðuna hér í ræðustól, sem er bara hið besta mál.

Og það getur verið fullt af kostum fyrir stærri hagsmuni að innleiða þennan orkupakka og tengja með grunnvirkjum og sæstreng. En þá held ég við ættum að tala bara afdráttarlaust og ganga í Evrópusambandið. Það má vel vera að einhverjir séu (Forseti hringir.) þeirrar skoðunar að þar sé okkur betur borgið til langrar framtíðar. En þá væri bara heiðarlegra að segja það en að vera með svona fyrirslátt.