ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þingmaður kom inn á mjög margt í ræðu sinni varðandi orkumál á Íslandi og aðstæður á Íslandi til samanburðar, m.a. við hvað ríkir víða í Evrópu. Ef ég skildi hv. þingmann rétt þá búum við þrátt fyrir allt, þrátt fyrir orkupakka eitt og orkupakka tvö, við algjöra sérstöðu hér á margan hátt. Ég hlýt að geta tekið undir það og það ber að verja með öllum ráðum og dáð. En ég skildi hv. þingmann jafnframt þannig að í því máli sem við erum að tala um akkúrat núna, séum við að afsala okkur sjálfræði og yfirráðum yfir orkuauðlindum þjóðarinnar.
Ég spyr hv. þingmann: Hvar í þessu máli er þar staf að finna um að við séum að afsala okkur valdi yfir okkar eigin orkuauðlindum?