149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:00]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Það sem við erum að afsala okkur eru yfirráð, það er álit okkar fremstu lögspekinga. Með leyfi forseta, segir í 4. kafla álitsgerðar Stefáns og títtnefnds Friðriks Hirst:

„Eins og áður greinir“ — og búið er að fara mjög ítarlega yfir þetta, þetta er það varfærnasta sem ráðherrann fann og vildi nota vegna þess að önnur álit voru meira afgerandi — „varða flestar reglurnar, sem fela í sér valdframsal til ESA, aðgang að grunnvirkjum yfir landamæri og rekstraröryggi þeirra. Slíkum grunnvirkjum, t.d. sæstreng, hefur ekki verið komið á fót hér á landi. Það breytir því þó ekki að þriðji orkupakkinn verður ekki tekinn upp í íslenskan landsrétt nú nema hann standist stjórnarskrána. Verður ákvörðun Alþingis um hvort aflétta eigi stjórnskipulegum fyrirvara Íslands við þriðja orkupakkann og innleiða hann í íslenskan landsrétt að miðast við þá forsendu að grunnvirkjum yfir landamæri verði komið á fót hér á landi, en við þær aðstæður myndi reyna á umrætt valdframsal til ESA, einkum samkvæmt reglugerð nr. 713/2009.“