ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég vil ítreka, og ég tek undir með hv. þingmanni um að við fyrri umr. um þetta mál eins og öll önnur mál sem varða hagsmuni þjóðarinnar, veltum við upp öllum mögulegum og ómögulegum spurningum til umfjöllunar til að aðstoða nefnd í umfjöllun um málið í framhaldinu. Það er bara eðlilegt. En ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur endilega farið inn á þann stað. Hann vitnar sífellt í mjög greinargott álit fræðimanna, Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar.
Spurning mín laut að yfirráðum á auðlindum. Ég ætla að vitna hér í annað minnisblað sem snýr að því. Það er minnisblað Ólafs Jóhannesar Einarssonar lögmanns. Þar segir að þriðji orkupakkinn varði ekki eignarrétt (Forseti hringir.) á orkuauðlindum á Íslandi eða hvort þær eru nýttar og í hvaða tilgangi. Þar kemur fram að þriðji orkupakkinn haggi í engu forræði íslenska ríkisins á náttúruauðlindum og er þar vísað bæði til (Forseti hringir.) 125. gr. EES-samningsins og 2. mgr. 194. gr. sáttmálans (Forseti hringir.) um starfshætti ESB. Það er bara skýrt, hr. þingmaður.