149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:03]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir spurninguna. Auðlindirnar eins og þær eru skilgreindar í dag eru á forræði ríkisins, flestar hverjar, þ.e. þær sem nú eru virkjaðar af Landsvirkjun. Það er hins vegar ekkert sem bannar það að virkja annars staðar. Hins vegar mun með innleiðingunni á þessum orkupakka koma til kvöð (Gripið fram í.) um það (Gripið fram í.) að skaffa raforku … (Gripið fram í.)— Viltu klára þetta? — … á sama verði til allra. Ef verðið er hærra í Evrópu en hér mun klárlega verða tengt við sæstreng og rafmagn sem þangað er selt, sem gæti valdið orkuskorti hér á landi, sem myndi leiða af sér að virkja þyrfti hér. Og það yrði þá væntanlega gert með einkaframtaki.

Ég held að við ættum að horfa til lengri framtíðar en fjögurra ára eða eins kjörtímabils. Við skulum horfa til 50, 100 eða 300 ára eins og Kínverjar gera, vegna þess að við verðum ekki 350.000 um alla eilífð. Okkur fjölgar. Og umframrafmagn í orkukerfinu er núna hvað? Leiðréttið mig ef ég fer rangt með. — 200 megavött? Ari Trausti Guðmundsson kannski veit betur. En það er ekki svo mikið að það þoli sæstreng akkúrat (Forseti hringir.) núna, þannig að krafa myndi verða sú að það yrði aukið til þess að geta borið uppi sæstreng.