149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:05]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður spurði áðan hvað lægi á eða af hverju við ættum að vera að innleiða þriðja orkupakkann. Ég velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi rætt þetta á þingflokksfundum Miðflokksins og farið í gegnum söguna, hvernig staðið var að verki þegar byrjað var að vinna við innleiðingu þriðja orkupakkans árið 2010 og síðan 2014 þegar Gunnar Bragi Sveinsson var utanríkisráðherra og vann með nefndum Alþingis, utanríkismálanefnd, atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þar sem nefndirnar komust að þeirri niðurstöðu að hér væri skynsamlega að verki staðið, það væru þeir fyrirvarar eða undanþágur sem við teldum nauðsynlegar, þær væru tryggar o.s.frv. og þess vegna var lagt til við sameiginlegu EES-nefndina að orkutilskipunin yrði innleidd. Þetta er staðan. (Forseti hringir.) Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður eigi ekki að beina þessari spurningu (Forseti hringir.) einnig inn í þingflokk Miðflokksins.