ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Hér er ég spurður um og beðinn um að svara fyrir hluti sem voru væntanlega gerðir í þingflokki Framsóknarflokks 2010 og 2014, Miðflokkurinn var ekki til á þeim tíma. Sá sem hér stendur getur varla svarað fyrir það og jafnvel þó svo að þar hefðu verið gerð mistök, eða í hvaða flokki sem væri, myndi það réttlæta mistök í dag? Myndi það réttlæta þau? Myndi það réttlæta að við vöndum okkur ekki við jafn stórt mál og þetta, sem varðar stjórnarskrá Íslands?
Mig langar að minna hv. þm. Óla Björn Kárason á að stjórnarskrá Íslendinga er með svolítið öðru sniði en stjórnarskrá annarra landa í EES-samstarfinu. Þar er t.d. í Noregi og Danmörku gert ráð fyrir að aukinn meiri hluta þurfi til þess að framselja ákveðnar valdheimildir, 3/4 hluta atkvæða í Noregi eða 5/6 hluta atkvæða í Danmörku. (Forseti hringir.) Því er ekki farið svo hér.