ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Þetta er orðin undarleg rökræða okkar í milli hér og talað um að skipta um flokka. Ég get kannski upplýst hv. þm. Óla Björn Kárason um að ég var flokksbróðir hans áður en ég gekk í Miðflokkinn, (ÓBK: Við söknum þín.) flokksbundinn Sjálfstæðismaður (ÓBK: Við söknum þín.) — Sömuleiðis, kannski ekki flokksins en ég sakna þín.
Það eru orðin rökþrot ef við ætlum að fara að gera þetta að umtalsefni hér, að ótti minn byggist á því að tryggt sé í dag að sæstrengur verði ekki lagður. Það verður ekkert tryggt í dag. Þetta er þingsályktunartillaga sem fer í tvær umræður. Hún fer ekki fyrir forseta Íslands og þetta öðlast … (ÓBK: Það liggur fyrir frumvarp.) — Við tryggjum ekki í dag að frumvarpið verði samþykkt. Og þetta öðlast ekki lagagildi undir undirskrift forseta Íslands samkvæmt stjórnarskránni. Hér er umræða um það sem á eftir kemur. Mig langar (Forseti hringir.) að biðja menn um að halda sig við umræðuefnið en ekki flokkadrætti.