149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:10]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrir 14 mánuðum síðan kom ég fram með mínar efasemdir um þennan pakka, þriðja orkupakka, og hef unnið í því að koma þessu í ákveðinn farveg undanfarna 14 mánuði. Með þeirri lausn sem var kynnt 22. mars sl., akkúrat ári eftir að Norðmenn greiddu atkvæði um þriðja orkupakkann í Stórþinginu, þá hafa fundist ákveðnar lausnir þannig að ég er miklu sáttari við þetta ferli sem hefur átt sér stað undanfarið ár. Það er þessi sæstrengur sem er stóra málið. Ég verð að segja um alla umræðuna hér að hún er ekki mjög djúp. Þetta er álitsgerð. Það er búið að ræða fyrst og fremst eina álitsgerð í sólarhring.

Ég vil byrja á að spyrja hv. þingmann: Telur hann raunverulega að við séum að samþykkja það að við stýrum ekki orkumálum þjóðarinnar til framtíðar, því hvernig við framleiðum orkuna, hvað við virkjum og hvernig við flytjum orkuna í landinu ef við myndum tengjast (Forseti hringir.) með sæstreng? Og hvaða áhrif telur þingmaðurinn að þetta hefði að öðru leyti (Forseti hringir.) ef við gerum það ekki? Heldur þingheimur (Forseti hringir.) raunverulega að Norðmenn hafi afsalað sér (Forseti hringir.) stjórn á sínum orkumálum 22. (Forseti hringir.) mars í fyrra?