ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Opinberast það ekki svolítið í þessu svari hv. þingmanns hversu ólíkum augum greinilega menn líta á málið? Það sem liggur hér fyrir með þriðja orkupakkann snýr að flutningi yfir landamæri, fyrir þá sem eru tengdir saman með grunnvirki yfir landamæri, varðar orkunýtni og aðra hluti. Þetta snýst aldrei um það að þessi stofnun, ACER, komi og segi: Við ætlum að virkja þetta í þessu landi, þið eigið bara að virkja. Þið eigið að framleiða segjum 500–1.000 MW inn á raforkukerfi Evrópu. Ég hef aldrei verið kominn svona langt í mínum hugsunum, í mínum efasemdum um þetta mál að mörgu leyti síðustu 14 mánuði en ef menn trúa því virkilega að þetta sé málið, þá erum við á svo miklum villigötum í þessari umræðu, hv. þingmaður, að furðu sætir. (Forseti hringir.) Þetta er bara undarlegt.