ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það voru ekki mín orð — ef ég gerði mig ekki skiljanlegan þá biðst ég afsökunar á því — að ACER ráði því hvort við virkjum ellegar ekki. (Gripið fram í.) Ég sagði það ekki áðan. Þá væri kannski ráð að fylgjendur þessa máls myndu koma hér upp og útskýra fyrirvarana. Af hverju eru gerðir fyrirvarar? Til hvers eru þeir? Á hverju eru fyrirvarar í þessu máli og af hverju eru þeir? Hvað óttist þið? Af hverju gerið þið fyrirvara við grunnvirkin? Af hverju gerið þið fyrirvara við sæstreng? (Gripið fram í.) Af hverju við téðar reglugerðir 713 (Gripið fram í.)og 714?
Hér kemur maður eftir mann upp í pontu og fylgir málinu eftir með þeirri röksemdafærslu að búið sé að gera fyrirvara, það sé búið að setja þá inn í álitið, inn í þingsályktunartillöguna, frumvarpið sé tilbúið og þar verði þetta geirneglt. Og með þessum fyrirvörum sé okkur óhætt. (Forseti hringir.) Óhætt fyrir hverju?