149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:27]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það kom mér út af fyrir sig ekki mikið á óvart, þótt nokkuð óvænt hafi það verið, að hv. þm. Birgir Þórarinsson skyldi dvelja lengur við orkupakka eitt og tvö en orkupakka þrjú sem hér er til umræðu. Því þar er væntanlega hægt að finna meira kjöt á beinunum sem grunn fyrir málflutning hans í hinum fyrri tveimur.

Það er búið að vera gegnumgangandi í röksemdafærslu hv. Miðflokksmanna að í þessum orkupakka þrjú felist með einhverjum hætti framsal eða afsal á valdi Íslendinga yfir eigin auðlindum. Ég vil því enn spyrja, og mun spyrja þá fleiri ef tilefni gefst til: Hvar er það að finna í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra? Hvaða greinar eru það sem fela í sér afsal á valdi yfir eigin auðlindum?