149. löggjafarþing — 91. fundur, 9. apr. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Virðulegi forseti. Já, ég mun sannarlega hlusta með andakt líka á seinni ræðuna. Vegna þess að það er til nokkuð mikils að vinna fyrir ykkur andstæðinga þessa máls að sýna mér fram á að það felist í því afsal á yfirráðum Íslendinga yfir eigin auðlindum. Því að ef þið getið bent mér á þær klásúlur, í því þingmáli sem hér liggur fyrir, sem fela það í sér, geng ég í lið með ykkur. Þá mun ég skipta um skoðun og fylkja mér með þeim í atkvæðagreiðslunni sem segja nei.
En þið verðið að sýna fram á þetta.