149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:32]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Orkumál eru partur af EES-samningnum og hafa ætíð verið, samanber annan kafla hans. Það er ekkert nýtt í því.

En hvað felst í þriðja orkupakkanum? Í fyrsta lagi er komið á samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði en það liggur fyrir að hvorki sú stofnun né ESA muni taka ákvarðanir um millilandatengingar gagnvart Íslandi þar sem við munum ekki tengjast markaðnum nema við ákveðum það sjálf, þ.e. hér á Alþingi, og tökum um það sérstaka ákvörðun.

Í öðru lagi aðgreinir orkupakkinn flutningskerfið frá öðrum rekstri á orkumarkaði en okkur var veitt undanþága frá þessu ákvæði. Það mun því ekki gilda hér.

Það sem snýr að okkur í þriðja orkupakkanum er að verið er að styrkja sjálfstæði Orkustofnunar gagnvart markaðsaðilum og stjórnvöldum og þá er neytendavernd jafnframt styrkt. T.d. er kveðið á um aukin réttindi neytenda til upplýsinga, gagnsæis og rétt þeirra til að skipta um orkusala. Það er væntanlega fólkinu í landinu til góðs.

Nú spyr ég: Setur hv. þingmaður (Forseti hringir.) sig upp á móti auknu sjálfstæði Orkustofnunar og bættri neytendavernd?