149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Að sjálfsögðu set ég mig ekki upp á móti bættri neytendavernd. Málum er háttað þannig í dag að mönnum er í sjálfsvald sett hvar þeir kaupa rafmagnið. Þetta er þegar til staðar. Verðmunurinn er hins vegar svo lítill að það svarar ekki einu sinni kostnað eða fyrirhöfn að skipta um raforkusala.

Ég get þannig ekki séð að nokkur bætt neytendavernd fylgi þessum orkupakka. Hún er þegar til staðar og eins og ég segi var lagt upp með hana þegar orkupakki eitt var innleiddur, þegar fyrirtækjunum var skipt upp í framleiðslu og sölu. Og það hafði bara eitt í för með sér: Rafmagnið hækkaði. Það er bara staðreynd. Ég held að hv. þingmaður ætti bara að kynna sér t.d. á landsbyggðinni hvað húshitunarkostnaður hefur hækkað (Forseti hringir.) eftir að orkupakki eitt var innleiddur. Það er nú öll neytendaverndin sem hv. þingmaður var að tala um.