149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:36]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla að vera á sama stað og hv. þm. Páll Magnússon áðan. Þegar maður hlustaði á ræðu hv. þm. Birgis Þórarinssonar var verið að sá tortryggni út um allt. Með innleiðingu orkupakkans þyrftum við að selja Landsvirkjun, skipta upp orkufyrirtækjum, það yrði að koma sæstrengur og við réðum ekkert við þetta.

Svar hv. þingmanns við spurningu Páls Magnússonar var á þann veg að þetta væri einhvern veginn brot á stjórnarskránni. Ég ætla að endurtaka spurninguna: Hvað hefur þingmaðurinn fyrir sér í því að við þurfum að selja Landsvirkjun, skipta upp orkufélögunum, leggja sæstreng? Hvar kemur það fram í þessari þingsályktunartillögu? Hvar kemur það fram í EES-samningnum? Hvar kemur það yfir höfuð fram, hv. þingmaður?