149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:38]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég fullyrti ekki, sem betur fer, að það þyrfti að selja Landsvirkjun. Ég varpaði því fram sem áhyggjum, hvort þetta gæti verið það sem myndi gerast þegar innleiddur verður þriðji orkupakkinn. (Gripið fram í.)Við vitum að þetta er allt af sama meiði, þ.e. að markaðsvæða orkufyrirtækin í landinu. Þessir orkupakkar — og þið þekkið það, hv. þingmenn — snúast um markaðsvæðingu raforkunnar. (Gripið fram í.)

Þetta er nákvæmlega sama og ég nefndi með Hitaveitu Suðurnesja, verið var að búa í haginn fyrir það að erlendir aðilar gætu þar með orðið eignaraðilar að íslensku orkufyrirtæki — og það gerðist og arðurinn af orkuvinnslunni fer úr landi. Við þekkjum þetta. Það er nákvæmlega sömu áhyggjur og ég hef varðandi þetta mál, að verið sé að búa í haginn, hér sé verið að undirbúa það (Forseti hringir.) að þegar sæstrengur kemur verðum við tilbúin til að fara í fullkomna einkavæðingu á orkufyrirtækjum í landinu.