149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:39]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður hefur ekkert fyrir sér í þessu, þetta eru bara einhverjar áhyggjur. Ég get alveg eins haft áhyggjur af því að sólardögum fækkaði ef við innleiddum þennan orkupakka. Ég hef ekkert fyrir mér í því. Þarna er verið að sá endalausri tortryggni, velta upp hlutum.

Það er ekki neitt í þessu sem sviptir okkur forræði yfir orkulindunum, skyldar okkur ekki til þess að fara inn í þennan orkumarkað. Ef við viljum fara inn í hann þá verðum við auðvitað að spila eftir reglum og um það eru þessar reglur. Ef það verður ágreiningur á þeim markaði verður einhver að skera úr þeim ágreiningi. Í okkar tilfelli yrði það náttúrlega ESA, ekki ACER eins og er núna hjá Evrópu. (Forseti hringir.) Það er mjög eðlilegt, það er eins og að vísa málum í gerðardóm að leysa úr ágreiningi á þann hátt.