149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:40]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég held að hv. þingmaður hafi einmitt hitt naglann á höfuðið þegar hann talaði um að vísa máli í gerðardóm. Er það ekki það sem við eigum að gera hér? Eigum við ekki að fara með þetta mál fyrir sameiginlegu EES-nefndina? Það er ágreiningur um þetta mál í öllu samfélaginu. Hvers vegna á að vera að samþykkja málið hér ef það er svona mikill ágreiningur um það? Það er ákveðinn farvegur til þess og hann er sameiginlega EES-nefndin. Við fáum niðurstöðu þar, sýnum fram á sérstöðu okkar og fáum varanlega undanþágu. Sú undanþága sem núna er verið að tala um byggist á spjalli hæstv. utanríkisráðherra í Brussel við orkumálastjóra Evrópusambandsins. Þetta hefur enga þjóðréttarlega þýðingu fyrir okkur, ekki nokkurn skapaðan hlut. Við vitum það vel. Þess vegna skil ég ekki hvað stjórnarliðar og Samfylkingin og Viðreisn er hrædd við að málið fari fyrir sameiginlegu EES-nefndina. Það er gott fyrir bakland ykkar allra, stuðningsmenn (Forseti hringir.) þessara flokka, að þetta fari þá lögformlegu leið. Þá fáum við niðurstöðu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)