ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mér þykir á málflutningi þingmannsins að draga megi þá ályktun að hann telji ekki nægilega vel hafa verið haldið á málum af hálfu íslenskra stjórnvalda. Því langar mig að spyrja, og hefur oft verið spurt áður í þessari umræðu, en það verður fróðlegt að heyra svarið hér eina ferðina enn: Stærstur hluti þessarar vinnu var unninn af hálfu íslenskra stjórnvalda á meðan forsvarsmenn og samflokksmenn hv. þingmanns voru í ríkisstjórn, forsætisráðherra og utanríkisráðherra, og héldu á þessu máli. Ítrekað var komið með málið fyrir þingið, leitað álits, beðið um að flagga mögulegum áhættuatriðum í því og á endanum ákveðið að taka málið upp í EES-samninginn án nokkurra fyrirvara við það. Er hv. þingmaður ánægður með það hvernig samflokksmenn hans héldu á þessu máli meðan ákvörðun um upptöku í EES-samninginn var tekin?