ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég verð að segja að ég þekki ekki það sem hv. þingmaður kom inn á. Í mínum huga á málið sér lengri forsögu og ég vitnaði í bréf frá 2001 sem voru skrifuð í iðnaðarráðuneytinu þar sem verið er að innleiða fyrsta orkupakkann og það kemur greinilega fram að menn vissu ekkert hvað þeir voru að gera. Það er alveg á hreinu. Það kemur t.d. fram í einu bréfinu að líklega muni þetta hafa í för með sér breytingar á niðurgreiðslum til húshitunar. Þeir voru ekki einu sinni vissir um það en skrifuðu samt undir, samþykktu og innleiddu fyrsta orkupakkann sem hafði þessar afleiðingar fyrir neytendur.
Þetta mál á sér miklu lengri forsögu og þess vegna segi ég: Það eru svo mörg vafaatriði í þessum þriðja orkupakka að við getum ekki innleitt hann óbreyttan. Við verðum bara að fara með þetta fyrir EES-nefndina, fara yfir málstað okkar þar og fá varanlegar undanþágur.