ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er alveg rétt að þetta úrræði um sameiginlegu EES-nefndina er til staðar ef upp kemur verulegur ágreiningur. Við erum í þeirri stöðu og mér sýnist af umræðunum hér að þorri þingheims sé í þeirri stöðu að telja þetta ekki það stórkostlega hættuspil sem þingmenn Miðflokksins halda fram.
Það er kannski svolítið kjánalegt að ætla að fara í fyrsta sinn með mál fyrir sameiginlegu EES-nefndina sem þorri þings telur ekki þeim annmörkum háð sem Miðflokkurinn reynir að halda fram. Ég tek svarleysi hv. þingmanns, við spurningu minni í fyrra andsvari, sem svo að hann sé fyllilega sáttur við afgreiðslu samflokksmanna sinna á málinu á sínum tíma þegar ákveðið var að taka það upp í EES-samninginn sem er ástæðan fyrir því að við erum í þessum umræðum hér í dag; að sú afgreiðsla hafi verið í góðu lagi. Þess vegna skil ég ekki af hverju þetta er svona mikið vandamál hér í salnum núna fyrst það var ekki vandamál þegar hv. þingmaður og samflokksmenn hans voru í ríkisstjórn sem leiddi málið áfram.